



Hvað þarf margar *hrúta* til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en það þarf margar perur.
Hvað þarf mörg *naut* til að skipta um ljósaperu?
Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu.
Hvað þarf marga *tvíbura* til að skipta um ljósaperu?
Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að
ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds
lit hvers og eins sem kemur inní herbergið.
Hversu marga *krabba* þarf til að skipta um ljósaperu?
Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir
atburðinn.
Hversu mörg *ljón* þarf til að skipta um ljósaperu?
Ljón skipta ekki um perur, í mesta lægi heldur hann henni á meðan
heimurinn snýst í kringum hann.
Hversu margar *meyjur* þarf til að skipta um ljósaperu?
Sjáum nú til: eina til að undirbúa peruna, aðra til að skrifa niður
hvenær ljósaperan sprakk og hvenær hún var keypt, aðra til að
ákveða hverjum er um að kenna að peran sprakk, tíu til að þrífa
húsið á meðan hinir skipta um peruna.
Hversu margar *vogir* þarf til að skipta um ljósaperu?
Í raun veit ég það ekki.. það fer soldið eftir hvenær peran hætti
að virka. Kannski nægir einn ef þetta er bara venjuleg ljósapera,
tvo ef hann veit ekki hvar á að kaupa nýja. Og hver væri nú besta
peran? Mikið af pælingum og áhyggjum yfir því.
Hversu marga *sporðdreka* þarf til að skipta um ljósaperu?
Og hver veit það? Afhverju viljiði vita það? Eruði kannski
lögreglumenn?
Hversu marga *bogamenn* þarf til að skipta um ljósaperu?
Sólin skín, það er gott veður, allt lífið framundan og þið hafið
áhyggjur af einhverri ljósaperu???
Hversu margar *steingeitar* þarf til að skipta um ljósaperu?
Enga. Steingeitur skipta ekki um ljósaperur því eftir góðar og
athyglisverðar samræður mun ljósaperan skilja að það er miklu
skynsamlegra að hún skipti um sig sjálf.
Hversu marga *vatnsbera* þarf til að skipta um ljósaperu?
Það koma helling af vatnsberum í keppni um hver þeirra er sá eini
sem getur gefið heiminum ljós aftur.
Hversu margar *fiska* þarf til að skipta um ljósaperu?
Afhverju, fór ljósið?